Tvö ný aðildarfélög að USVH
Tvö íþróttafélög hafa nýverið sótt um aðild að Ungmennasambandi Vestur-Húnvetninga og hafa þau bæði hlotið bráðabrigðaaðild fram að næsta héraðsþingi, eins og frá er sagt á vef USVH. Þessi félög eru Blakfélagið Birnurnar og Ungmennafélagi Harpa. Blakfélagið Birnurnar er nýstofnað félag, en eins og nafnið bendir til er aðaláherslan lögð á blakíþróttina. Með tilkomu félagsins hafa vinsældir blaksins aukist í Húnaþingi vestra. Ungmennafélagið Harpa er hinsvegar gamalt og rótgróið félag í Hrútafirði sem fluttist úr HSS yfir í USVH. Kemur það einkum til vegna sameiningar Bæjarhrepps og Húnaþings vestra.