Úlfur Úlfur á Players í kvöld

Rapphljómsveitin Úlfur Úlfur hefur nýlega opnað heimasíðu og munu strákarnir koma fram á Players í Kópavogi í kvöld, 16. september.

Úlfur Úlfur er nýleg rapphljómsveit sem samanstendur af þremur metnaðarfullum piltum; Helga Sæmundi, Arnari og Bjössa. Á stuttum starfsferli hafa þeir sent frá sér fjölda laga og eru allir sem geta hvattir til að koma og skemmta sér með þeim í kvöld.

Vefsíðan þeirra www.ulfurulfur.com hefur verið að fá góð viðbrögð og þar er hægt að fylgjast með tónleikum, bloggi, tónlist, myndböndum og fleira. Þar er einnig hægt að skrá sig á póstlistann á vefnum þeirra til að fá fréttir af öllu því nýjasta, frítt inn á tónleika og fría tónlist.

Hér hægt að sjá myndbandið þeirra við lagið Lupus Lupus. Myndbandið ásamt mun meira efni má skoða á heimasíðu hljómsveitarinnar.

Fleiri fréttir