Um 100 manns við messu í Ábæ
Um hundrað manns voru við árlega sumarmessu í Ábæjarkirkju í Austurdal, en þar er ávallt messað á sunnudegur um verslunarmannahelgi. Eftir messu var boðið upp á kirkjukaffi á Merkigili.
Það var sr. Dalla Þórðardóttir á Miklabæ sem messaði, meðhjálpari var Agnar H. Gunnarsson. Ingimar Ingimarsson frá Flugumýri var ræðumaður dagsins og kirkjukór Laugalandsprestakalls undir stjórn Daníels Þorsteinssonar söng við athöfnina.
Valgeir Kárason á Sauðárkróki var við messuna og fékk Feykir þessa mynd til birtingar frá honum.