Um tuttugu nýttu sér V.I.T. verkefnið

V.I.T. (Vinna, Íþróttir, Tómstundir) er átaksverkefni sem hefur verið í gangi um fjögurra ára skeið hjá sveitarfélaginu Skagafirði og lítur að því að öll ungmenni á aldrinum 16-18 ára fái sumarstörf hjá hinum ýmsu fyrirtækjum í bænum, sem og nokkrum deildum sveitarfélagsins, í gegnum V.I.T. og gefur þeim þess vegna tækifæri á atvinnu í sumrin sem og reynslu á vinnumarkaði.

Verkefnið er einstakt að landsvísu, að sögn Þorvaldar Gröndal, forstöðumanns Húss Frítímans. „Það er alla vega ekki til annars staðar mér vitandi. Þessu var komið á hér, þar sem þennan aldurshóp vantaði smá aðhald, og hefur verið að virka mjög vel þessi árin en svipaður fjöldi sækir um á hverju ári.“

Í sumar hófu tuttugu og tvö ungmenni störf á vegum V.I.T.-verkefnisins og voru sautján sem unnu allt sumarið. „Sum þeirra fengu vinnu annars staðar þegar aðeins var liðið á sumarið, því að mörg þessara sumarstarfa eru tengd sumarleyfum og tilfallandi verkefnum og því eru menn oft ekki búnir að sjá hversu mikil þörfin er í mars eða apríl, þegar ungmennin byrja að sækja um. Þannig að losni störf annars staðar er þeim yfirleitt frjálst að stökkva á þá vinnu.“ sagði Þorvaldur í samtali við Feyki.

Fleiri fréttir