Umferðaróhapp við Árskóla
Umferðaróhapp var við gatnamótin við Árskóla um kl. 22:30 í kvöld. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni þegar hann beygði af Skagfirðingabraut upp Sæmundarhlíð og lenti utanvegar, á grindverki.
Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er talið að ökumaður bifreiðarinnar hafi ekið ógætilega og er hann grunaður um of hraðan akstur en skilyrði á vegum voru góð. Enginn slasaðist við óhappið.