Umferðaróhapp við Malland
Maður á sextugsaldri missti stjórn á bifhjóli sínu í lausamöl á Skagavegi við Malland, skömmu eftir hádegi í dag. Lenti hann á bifreið sem kom akandi úr gagnstæðri átt. Samkvæmt heimildum ruv.is fór betur en fyrst á horfðist þar sem ökumaður bifreiðarinnar áttaði sig á í hvað stefndi og stöðvaði bílinn áður en þeir lentu saman.
Ökumaður bifhjólsins var færður á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki til skoðunnar og reyndist vera handleggsbrotinn en að öðru leyti með minniháttar áverka.
Óhappið átti sér stað á svipuðum slóðum og banaslys varð fyrir nokkrum vikum þar sem bifhjól kom einnig við sögu.