Umsóknarfrestur um starf vistarstjóra að renna út

Í dag rennur út frestur til að sækja um stöðu heimavistarstjóra við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með íbúum heimavistar í samræmi við gildandi heimavistarreglur, aðstoð við félagslíf heimavistarbúa, eftirlit með húsakynnum heimavistar, minniháttar viðhald og dagleg þrif á göngum og anddyri.

Leitað er að fjölhæfum umsækjanda sem á gott með umgangast ungt fólk. Áskilið er að heimavistarstjóri búi í íbúð sem tilheyrir heimavistinni. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Í auglýsingu kemur fram að ekki þurfi að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn þurfi að fylgja afrit af prófskírteini og yfirlit um fyrri störf. Umsóknir skulu sendar skólastjóra (ingileif@fnv.is).

Fleiri fréttir