Undirbúningur Árnahlaups gengur vel
Árnahlaup er einn af hápunktum skagfirskra lummudaga í ár. Hlaupið verður til heiðurs Árna Stefánssyni íþróttakennara við FNV sem er sextugur í ár. Að sögn Sigríðar Svavarsdóttur sem er í forsvari fyrir undirbúning hlaupsins, gengur undirbúningur mjög vel og það er að bætast við þátttöku í langa hlaupið. Hún segir erfitt að segja til um styttri hlaupin af því þar sé ekki forskráning, en hún hefur trú á góðri þátttöku.
Þrjár hlaupaleiðir verða í boði og því geta ungir sem aldnir verið með. Lengsta leiðin og jafnframt sú eina þar sem keppt er til verðlauna, er 17.6 km fjallahlaup um svokallaðar Kimbastaðagötur, en þessi leið var hlaupin á landsmóti 2004. Tímataka og aldursskipting er á þessari leið, það er 39 ára og yngri, 40-49 ára og 50 ára og eldri. Einnig er boðið upp á 2 km og 6 km hlaup. Ræst er í allar vegalengdir á íþróttavelli við sundlaug og þar verður einnig endað, með grilli og tilheyrandi. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu sætin í 17,6 km og einnig eru fjölmörg þátttökuverðlaun sem dregið verður um. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um hlaupið á hlaup.is og fésbókarsíðunni facebook.com/arnahlaup.
Kl. 10:00 Fjallahlaup, keppnishlaup – sama leið og hlaupin var á landsmóti 2004, svokallaðar Kimbastaðagötur, 17,6 km með tímatöku og aldurskiptingu. 39 ára og yngri 40-49 ára og 50 ára og eldri. Skráning í þetta hlaup fer fram á hlaupasíðunni hlaup.is og er skráningargjald kr. 3000. Skráningu lýkur föstudagskvöldið 28. júní kl. 18:00. Einnig má skrá sig að morgni hlaupadags frá kl. 8:00-9:00 á íþróttavellinum á Sauðárkróki, en þá er gjaldið hærra: kr. 4.000.
Afhending gagna í lengsta hlaupið fer fram kl. 20:00 – 22:00 á föstudag við Sundlaug Sauðárkróks eða á íþróttavelli að morgni hlaupadagsins kl. 08:00-09:00.
Innifalið í skráningargjaldi er: Þátttökugripur, verðlaun fyrir fyrstu 3 sæti í hverjum aldursflokki kvenna- og karla, m.a. eru hlaupaskór frá Asics fyrir 1. sæti í hverjum flokki, karla og kvenna auk verðlaunagrips, tímataka, merkt handklæði, vatn og orkudrykkur á leiðinni, hressing í marki, brautar- og öryggisgæsla á leiðinni og frítt í sund
Kl. 11:00 Hlaup/ganga um Skógarhlíð og niður Grænuklauf (6,6 km), eða hringur um Litla-skóg og niður Grænuklauf (2 km).
Ekkert skráningargjald er í þessi hlaup, en þátttakendur þurfa að skrá sig á staðnum (íþróttavellinum) áður en lagt er af stað.
Allir þátttakendur fá viðurkenningu og frítt verður í sund að hlaupi loknu. Munið að skrá ykkur svo allir verði með í útdráttarverðlaununum.
Kl. 12:00 Grill og skemmtiatriði.
Verðlaunaafhending og vegleg útdráttarverðlaun frá asics og fleirum.
Árni heiðraður.
Hægt er að hafa samband við skipuleggjendur á sirry@fnv..is og kristjan@nv.is.