Undirbúningur fyrir Gæruna 2014 hafinn

Undirbúningur er hafinn fyrir tónlistarhátíðina Gæruna 2014 sem haldin verður á Sauðárkróki dagana 14. - 16. ágúst. Skipuleggjendur auglýstu eftir hljómasveitum til að spila á hátíðinni í dag.

 „Við vorum bara að henda út umsóknareyðublöðunum núna í dag og umsóknarfrestur rennur út 2. júní,“ sagði Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir í samtali við Feyki. Líkt og í fyrra eru það Sigurlaug og Laufey Kristín Skúladóttir sem standa að hátíðinni, ásamt Sigfúsi Arnari Benediktssyni (Fúsi Ben) og Stefáni Friðriki Friðrikssyni.

Þær hljómsveitir sem koma fram á hátíðinni fá að launum bensín styrk, gistingu, kvöldmat það kvöld sem hljómsveitin spilar, drykkjarmiða, backline og armband fyrir hvern meðlim sem gildir á alla hátíðina. Gæran er haldin í einu sútunarverksmiðju landsins.

Hér má nálgast umsóknareyðublöð.

Fleiri fréttir