Unga fólkið stóð í ströngu um helgina í körfuboltanum
Um síðustu helgi léku 10. flokkur stúlkna og 9. flokkur drengja í Íslandsmótinu í körfubolta og verða bæði liðin áfram í B-riðlum í næstu umferð. 7. flokkur stúlkna lék á laugardag.
Á Tindastóll.is er sagt frá leikjunum en strákarnir töpuðu á heimavelli fyrir Keflavík 52-65, unnu ÍR 45-42 og töpuðu fyrir Stjörnunni 29-44 og Haukum 37-72.
10. flokkur stúlkna lék í Smáranum í B-riðli og spilaði þar tvöfalda umferð við KR og Breiðablik. Liðið háði harða baráttu við KR, sigraði fyrri leikinn gegn þeim 41-38 en tapaði seinni leiknum 35-41 og varð því undir í innbyrðisviðureignum. Bæði þessi lið unnu síðan Breiðablik örugglega.
Leikir 7.flokksins urðu erfiðir en lið Keflavíkur sigruðu alla sína mótherja mjög örugglega og leikirnir gegn Ármanni og Hrunamönnum töpuðust líka. Stelpurnar stóðu sig allar mjög vel og börðust allt til enda en að þessu sinni mættu þær ofjörlum sínum.