Ungfolasýning á Hvammstanga
feykir.is
Hestar, Vestur-Húnavatnssýsla
21.04.2010
kl. 09.10
Ungfolasýning (stóðhestasýning) verður haldinn á vegum Hrossaræktarsamtaka V-Hún föstudaginn 30. apríl n.k. og hefst kl. 20:00 í Þytsheimum á Hvammstanga.
Keppt verður í 3 flokkum:
- 2ja vetra hestar ( hesturinn uppstilltur fyrir byggingardóm og látinn hlaupa um reiðhöllina)
- 3ja vetra hestar ( hesturinn uppstilltur fyrir byggingardóm og látinn hlaupa um reiðhöllina)
- 4ra vetra hestar ( hesturinn uppstilltur fyrir byggingardóm og látinn hlaupa um reiðhöllina eða sýndur í reiðhöllinni)
- Dómari verður Eyþór Einarsson.
Skráningargjald er 1.500 kr á hest og greiðist á staðnum. Við skráningu þarf að koma fram nafn hests og númer. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 28. apríl. Skráning hjá Loga í síma 8483257 eða Jóh. Alb. í síma 869-7992 eða senda skráningu á netfangið auksmyri@gauksmyri.is