Ungir framsóknarmenn í Skagafirði ósammála fráfarandi formanni SUF
Nýlega sagði Sigurjón Nordberg Kjærnested af sér sem formaður Sambands ungra framsóknarmanna þar sem hann taldi að Framsóknarflokkurinn hafi tekið stefnu sem hann sé ekki tilbúinn að fylgja. Lét hann hafa eftir sér að hann íhugi að fylgja Guðmundi Steingrímssyni í nýjan flokk, verði hann stofnaður. Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Skagafirði hefur brugðist við afsögn og ummælum Sigurjóns með eftirfarandi yfirlýsingu.
Vegna afsagnar formanns Sambands ungra framsóknarmanna, Sigurjóns Nordberg Kjærnested, og yfirlýsinga hans í fjölmiðlum að undanförnu er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram:
Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Skagafirði lýsir sig algerlega ósammála ummælum Sigurjóns Nordberg Kjærnested um ólýðræðisleg vinnubrögð, fámenni í ákvarðanatöku og sérhagsmunagæslu innan Framsóknarflokksins og telur þau sérstaklega undarleg í ljósi þess að síðastliðin tvö ár hafa átt sér stað miklar og markvissar lýðræðis- og skipulagsumbætur innan flokksins sem allar miða að því að auka og auðvelda þátttöku almennra félagsmanna í stefnumörkun og ákvarðanatöku.
Ummæli Sigurjóns eru ekki síst furðuleg vegna þess að hann hefur sem formaður SUF sjálfur beitt óspart þeim vinnubrögðum sem hann gagnrýnir. Frá því hann hlaut kosningu eftir víðtæka atkvæðasmölun utan flokksins hefur SUF verið stjórnað af fámennum hópi fólks í kring um hann sjálfan og nánast ekkert samráð verið haft við aðildarfélög sambandsins um málefni eða ákvarðanatöku. Ekki hefur verið haldinn stjórnarfundur í Sambandi ungra framsóknarmanna síðan í apríl og forystumenn SUF hafa ekki nýtt rétt sinn til setu á þingflokksfundum frá sama tíma, sem þó er einn mikilvægasti samráðsvettvangur ungliðahreyfingarinnar við forystu flokksins.
Hefur Samband ungra Framsóknnarmann verið óvirkt um margra mánaða skeið vegna þessara vinnubragða. Á sama tíma hefur Sigurjón og stjórn SUF, án samráðs við félög ungra framsóknarmanna, lýst sig ósammála mörgum mikilvægustu málum flokksins eins og lýðræðisumbótum í málefnastarfi og stefnufestu gegn Icesave málinu svo eitthvað sé nefnt.
Svo virðist sem stefnubreyting Framsóknarflokksins gegn ESB aðild á flokksþingi í apríl 2011 sé höfuðástæða brotthvarfs Sigurjóns, enda hljópst hann algerlega undan skyldum sínum í kjölfar þeirrar. Hann virðist hins vegar telja nauðsynlegt að skýra afsögn sína með öðrum hætti og koma höggi á fyrrum samstarfsfólk í leiðinni.
Stjórn FUFS bendir á að eftir yfirlýsingar Sigurjóns í fjölmiðlum 24. ágúst barst honum krafa um að skýra ummæli sín fyrir ungum framsóknarmönnum á Austurlandi á félagsfundi. Þeirri kröfu hefur formaður SUF nú kosið að svara með afsögn sinni.