Ungir Framsóknarmenn ósáttir við að vera bendlaðir við „Aumingjabréfið“
Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Skagafirði hefur fundið sig knúna til að birta yfirlýsingu með óánægju sína með þá miða sem dreift var í nokkur hús á Sauðárkróki á dögunum, þar sem íbúar voru sagðir aumingjar og þakkað fyrir ekkert eins og það var orðað. Mátti ætla að Píratar hefðu sent út bréfið (sem þeir gerðu ekki) en einhverra hluta vegna var gjörningurinn hermdur upp á ungu Framsóknarmennina (sem þeir frömdu ekki) á Facebook.
„Þykir okkur miður að á okkur séu bornar sakir um að standa að baki þessu, þar sem ekkert okkar hefur sent svona út. Lýðræðið réði í Alþingiskosningunum, og því siðlaust að senda svona út í nafni einhvers sem ekki stendur svo að baki verkanna. Við óskum Evu Pandoru Baldursdóttir oddvita Pírata velgengni á Alþingi Íslendinga og ítrekum um leið að við stöndum ekki að baki þessum ósmekklegheitum.“ Undir þetta skrifa Róbert Smári Gunnarsson, formaður, Hólmsteinn Orri Þorleifsson, varaformaður, Gísli Laufeyjarson Höskuldsson, Berglind Ýr Björgvinsdóttir og Sæþór Már Hinriksson.
Tengd frétt: http://www.feykir.is/is/frettir/illa-igrundadur-brandari