Unglingalandsmót á næsta leiti

Næsta Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina á Egilsstöðum en það er Ungmenna og íþróttasamband Austurlands sem er mótshaldari að þessu sinni og stefnt er að því að halda glæsilegt mót við góðar aðstæður. Allir á aldrinum 11 – 18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu og en keppendur greiða eitt mótsgjald, kr. 6.000.- og fá með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum.

Elmar Eysteinsson framkvæmdastjóri UMSS vill vekja athygli á því að þeir sem ætla á mótið frá UMSS þurfa að skrá sig og greiða skráningargjald 3.000 kr.  Lagt er inn á reikning 0310-26-1997, kt. 670269-0359, og nafn barnsins sett í skýringar á greiðslu en mikilvægt er að þetta sé greitt strax, en ekki eftir mót, að sögn Elmars. -Auk þess þurfum við að fá upplýsingar um hversu margir ætla að gista á tjaldsvæði og hvort fólk sé með tjald, fellihýsi, tjaldvagn eða húsbíl, til að tryggja að UMSS verði úthlutað nægilega stóru svæði. Þeir krakkar sem eru að æfa fótbolta, körfubolta eða frjálsar hjá Tindastól eru beðnir um að tala við þjálfara sína um skráningar, segir Elmar en tekið er á móti skráningum á umss@simnet.is, í gegnum síma 453-5460 eða á skrifstofu okkar að Víðigrund 5 á skrifstofutíma.

Fleiri fréttir