Ungmennaráð Húnaþings vestra eitt af þeim virkustu
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
07.02.2014
kl. 14.03
Í vikunni átti ungmennaráð Húnaþings vestra fund með Vali Rafni Halldórssyni, starfsmanni ungmennaráðs Ölfuss. Hélt hann fyrirlestur um ungmennaráð hérlendis. Í máli Vals kom fram sérstakt hrós til Ungmennaráðs Húnaþings vestra, sem hann segir með þeim virkustu á landsvísu.
Í fyrirlestri sínum gerði Valur ráðinu grein fyrir hlutverki ráðsins, en skv. æskulýðslögum er hlutverk ungmennaráða að vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi.
Þetta kemur fram í fundargerð ungmennaráðs frá 3. febrúar sl. en hún er birt á vef Húnaþings vestra.