Unnið að frágangi á sjötta bindi Byggðasögu Skagafjarðar

Nú er unnið að prófarkalestri og frágangi á sjötta bindi Byggðasögu Skagafjarðar. Bókin verður af sömu stærð og síðasta bók, rúmar 380 blaðsíður með 600-700 ljósmyndum og fjallar um Hólahrepp - Hjaltadal og Kolbeinsdal þar sem kaflinn um Hóla tekur yfir nærri 100 blaðsíður.

 

Áætlað var að Hofsós og Hofsóshreppur yrðu með í þessari bók en ógerlegt reyndist að ljúka á tilsettum tíma skrifum á Hofsóskaflanum svo að viðunandi þætti og var því ákveðið að fresta útkomu hans. Byggðasaga Hólahrepps er væntanleg á markað seinni hluta nóvembermánaðar.

/Sögufélag Skagfirðinga

Fleiri fréttir