Unnið að viðunandi lausn til að tryggja raforkuöryggi Skagfirðinga

Aðveitustöð Rarik á Sauðárkróki. Mynd: KSE
Aðveitustöð Rarik á Sauðárkróki. Mynd: KSE

Eins og greint var frá í Feyki á fimmtudaginn var stór hluti heimila í Skagafirði rafmagnslaus í allt að sex klukkustundir síðastliðinn þriðjudag. Víða var rafmagn ekki komið á fyrr en um kvöldmatarleytið. Má nærri geta að óþægindi urðu mikil fyrir íbúa svæðisins og allt atvinnulíf. Rarik og Landsnet vinna nú að því að finna orsökina og í framhaldi viðunandi lausn til að tryggja raforkuöryggi Skagfirðinga.

Í gærmorgun fundaði sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar með fulltrúum frá Rarik. Að sögn Ástu Pálmadóttur sveitastjóra var farið yfir það á fundinum hvað hefði komið fyrir og hver væru næstu skref. „Það er alveg ljóst að við þurfum að gera eitthvað í okkar málum, og Rarik og Landsnet munu fylgja því eftir. Þetta er auðvitað tilfinnanlegt tjón, sérstaklega fyrir framleiðslufyrirtæki,“ sagði hún.

Ásta sagði jafnframt að annar spennir hefði verið settur niður til vonar og vara. Brugðist hefði verið við um miðjan daginn með því að keyra fleiri varaaflsstöðvar og þær væru nú fjórar á staðnum. „Um leið og Gönguskarðársvirkjun kemur inn verðum við með meira öryggi, en það er ekki það sem við erum að horfa á eingöngu. Það á að vinna áfram að lausn, það eru allir meðvitaðir um að þetta getur ekki gengið svona,“ sagði Ásta ennfremur.

Fyrir fundinn hafði byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar fjallað um málið og var eftirfarandi fært til bókar:

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum með óviðunandi ástand rafmagnsmála í Skagafirði um árabil. Stór tjón hafa orðið af völdum rafmagnsleysis á síðustu 18 mánuðum og hættuástand skapast. Byggðarráð krefst þess að bætt verði úr nú þegar og fer fram á fund með fulltrúum Rarik, Landsnets, ráðherra og þingmönnum kjördæmisins ásamt fulltrúum frá stærstu orkukaupendum í sveitarfélaginu.

Er þarna, auk rafmagnsleysisins á þriðjudaginn, vísað til um fimm klukkustunda rafmagnsleysis á svæðinu þann 14. ágúst 2014, sem og umtalsverðra rafmagnstruflana í júlí það ár. Þá bilun mátti rekja til skynjara í aflspenni í spennistöðinni á Sauðárkróki en í fyrstu var talið að bilum væri í aflspenninum sjálfum.

Feykir hafði samband við nokkur fyrirtæki og stofnanir á svæðinu til að kanna þau áhrif sem rafmagnstruflanir af þessu tagi hafa á starfsemi þeirra. Skemmst er frá að segja að áhrifin eru ekki síst í formi vinnutaps og stöðvunar á starfsemi en í einhverjum framleiðslufyrirtækjum urðu jafnframt skemmdir á verðmætum.

„Við hjá Vörumiðlun erum mjög háð rafmagni eins og flestir, matvæli eru í kæli og frysti, öll fylgibréf eru í tölvum og allar þær upplýsingar sem við þurfum einnig. Lestunar búnaður er einnig fyrir rafmagni,“ sagði Magnús Svavarsson hjá flutningafyrirtækinu Vörumiðlun.

Magnús minntist þess jafnframt að haldinn hefði verið fundur eftir rafmagnsleysið 2014 og rætt hvað þyrfti að vera til staðar ef þetta kæmi fyrir aftur. „Það hefur greinilega ekki mikið verið gert með þá niðurstöðu, allavega vorum við rafmagns laus í svipaðan tíma í gær,“ sagði Magnús.

Hjá Sýslumanninum á Sauðárkróki hafði stöðvaðist öll afgreiðsla, þar sem að nánast öll vinna er framkvæmd í tölvum og tækjum tengdum rafmagni.  „Ekki er vitað á þessari stundu um neinar skemmdir á búnaði eða að gögn hafi tapast,“ sagði Ásta P. Ragnarsdóttir í samtali við Feyki í á miðvikudagsmorgun.

Starfsemi hjá Stoð ehf. verkfræðistofu stöðvaðist við rafmagnsleysið en þegar Feykir hafði samband hafði ekki verið lagt mat á tjón þar. Óþægindi af þessu urðu hjá nokkrum viðskiptavinum. Hjá Byggðastofnun var lokað og starfsfólk sent heim kl 14, að sögn Aðalsteins Þorsteinssonar.

„Hjá okkur er þetta einfaldlega vinnutap upp á þessa fimm tíma. Ekkert hægt að vinna í bókhaldi eða með rafmagnstól og tæki.  Það er mjög erfitt að meta þetta í krónum, því öll vinnan sem tapaðist er „innanhús“ en ekki eitthvað sem hefði verið innheimt frá öðrum,“ sagði Sigríður Magnúsdóttir skrifstofustjóri hjá Steypustöð Skagafjarðar.

Þannig varð tjón hjá Mjólkursamlagi KS, en haft var eftir Magnúsi Frey Jónssyni, forstöðumanni þar í fréttum RÚV, að vörur sem voru í framleiðslu hefðu skemmst þegar tæki stöðvuðust.

Hjá Steinullarverksmiðjunni þurfti að stöðva framleiðslu um tíma. Einar Einarsson, framkvæmdastjóri, sagði í samtali við RÚV að verksmiðjan hafi stöðvast tvisvar. Tafirnar kosti auðvitað eitthvað en ekkert beint tjón hafi orðið af þessum völdum.

 

 

 

Fleiri fréttir