Unnið hratt að endurbótum

VInna við endurbætur á fjósinu að Egg í Hegranesi gengur vel, en eins og greint hefur verið frá kviknaði í fjósinu þar aðfararnótt mánudags. Húsfreyja á þarnæsta bæ varð vör við brunalykt og gerði ábúendum á Egg, þeim Emblu Dóru Björnsdóttur og Davíð Loga Jónssyni aðvart.

Að sögn Emblu Dóru er nú unnið að því að loka þakinu, en fjósþakið er allt ónýtt ásamt hluta af hlöðuþakinu. Hún segir iðnaðarmenn hafa drifið af strax um morguninn og um kl tvö um daginn var hægt að hefja mjaltir. Mjaltakerfið er því komið í lag og vatn og rafmagn til bráðabirgða. Embla segir um 15-30 manns hafa verið við störf hjá þeim frá því á mánudagsmorgun. Er hún bjartsýn á að tryggingar nái yfir tjónið.

Þegar Feykir kom á staðinn á mánudagsmorgun var þegar búið að slökkva eldinn og viðgerðir hafnar. Embla segir viðgerðarmann frá Akureyri hafa lagt af stað kl sex um morguninn til að gera við mjaltakerfið. Pípulagningarmaður og iðnaðrmenn frá Tengli voru komnir á staðinn um áttaleytið og smiðir yfirgáfu önnur verk til að koma að Egg og gera við þakið þar. "Þannig að þetta er allt eins og best verður á kosið miðað við aðstæður."

Davíð sagði að slökkvilið frá Sauðárkróki hefði þegar verið kallað á staðinn og gekk nokkuð greiðlega að slökkva eldinn. Verið er að rannsaka eldsupptökin.

Fleiri fréttir