Uppbótartíminn reynist Stólunum enn dýrmætur
Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir og kræktu í stig í kvöld í leik gegn toppliði Fjölnis í 1. deild karla í knattspyrnu. Útlitið var ekki bjart því í hálfleik voru heimamenn 2-0 yfir en tvö mörk undir lok leiks tryggðu Stólunum 2-2 jafntefli.
Fjölnismenn voru sterkari framan af leik en Tindastólsmenn fengu dauðafæri á 20. mínútu þegar Morin komst inn fyrir vörn heimamanna, markvörðurinn varði frá honum en boltinn barst til Tsonis sem var í enn betra færi en á ævintýralegan hátt náði Haukur Lárusson að bjarga á línu. Strax í kjölfarið fékk Fjölnir gott færi en Furness varði boltann í horn. Upp úr horninu skoraði Haukur fyrsta mark leiksins og aðeins mínútu síðar gerði Ragnar Leósson annað mark Fjölnis og staða heimamanna vænleg í leikhléi.
Stólarnir voru sprækari í upphafi síðari hálfleiks. Á 75. mínútu vildu Tindastólsmenn fá víti þegar brotið var á Fannari Erni en dómarinn hafði ekki list á að dæma víti. Það er svo loks á 87. mínútu sem Stólarnir minnka muninn með marki frá Tsonis sem tók við langri sendingu, hélt varnarmanni Fjölnis frá sér og skoraði af öryggi. Á 90. mínútu var mark dæmt af Tindastóli eftir að Morin fylgdi eftir góðum skalla Tsonis sem markvörður Fjölnis hafði varið snilldarlega. Rétt eins og í leiknum á undan pressuðu Stólarnir allt hvað af tók síðustu mínúturnar og þegar liðið fékk aukaspyrnu í blálokin var Furness mættur í teig heimamanna. Upp úr aukaspyrnunni var dæmd hendi á Illuga Þór Gunnarsson og hann sendur í sturtu. Afmæliskappinn Steven Beattie framkvæmdi vítaspyrnuna og jafnaði metin. Strákarnir fögnuðu vel mikilvægu stigi á erfiðum útivelli en það var miður að Morin lenti í stappi við markmann Fjölnis í kjölfarið á vítinu og voru báðir reknir af velli. Lokatölur 2-2.
Á laugardaginn kemur lið Knattspynufélags Fjallabyggðar í heimsókn á Krókinn og hefst leikurinn kl. 14:00. Allir á völlinn!