Uppsetning skilta vegna hraðatakmarkana
feykir.is
Skagafjörður
01.04.2014
kl. 10.04
Fyrirhuguð uppsetning hraðatakmörkunarskilta á Sauðárkróki, sem ljúka átti í janúar 2014 hefur ekki gengið eftir. Þetta kom fram á fundi umhverfis- og samgöngunefndar sl. fimmtudag.
Samkvæmt bókun frá 29. október sl. var stefnt að því að uppsetningunni yrði lokið í janúar á þessu ári. Er nú stefnt að því að uppsetningin hefjist í þessari viku og hraðatakmarkanir taki gildi fyrir 1. maí. Á fundinum sl. fimmtudag var ákveðið að fela sviðsstjóra og formanni nefndarinnar að kynna málið.