Uppsetningar Leikfélags Sauðárkróks meðal þeirra best sóttu
Bandalags íslenskra leikfélaga hefur tekið saman helstu tölur um starfsemi aðildarfélaganna fyrir leikárið 2010-2011 og í meginatriðum eru þær mjög svipaðar og undanfarin ár. Á leikárinu voru 60 aðildarfélög að Bandalaginu en fjöldi félaga með starfsemi á árinu var 39 og í þeim félögum störfuðu 2.522 félagar. Leikfélag Sauðárkróks setti upp tvær sýningar sem voru vel sóttar.
Samtals yfir landið voru settar upp 91 leiksýning sem sýndar voru 572 sinnum og tóku þátt í þeim 1.682 manns. Heildarfjöldi áhorfenda á sýningum Bandalagsleikfélaganna var 38.956 manns.
20 best sóttu sýningarnar voru þessar:
- 1. Leikfélag Hörgdæla, Með fullri reisn - 2.800 áhorfendur á 30 sýningum
- 2. Leikfélag Vestmannaeyja, Mamma mia (Sjens á skrens), - 2.004 áhorfendur á 15 sýningum
- 3. Freyvangsleikhúsið, Svejk - 1.863 áhorfendur á 24 sýningum
- 4. Borgarbörn, Leikfangalíf - 1.629 áhorfendur á 25 sýningum
- 5. Leikfélag Vestmannaeyja, Konungur ljónanna, - 1.473 áhorfendur á 12 sýningum
- 6. Leikfélag Hafnarfjarðar, Fúsi froskagleypir - 1.380 áhorfendur á 10 sýningum
- 7. Umf. Íslendingur, leikdeild, Með fullri reisn - 1.100 áhorfendur á 14 sýningum
- 8. Umf. Efling, leikdeild, Saga úr Vesturbænum - 1.045 áhorfendur á 12 sýningum
- 9. Litli leikklúbburinn, Emil í Kattholti - 944 áhorfendur á 10 sýningum
- 10. Snúður og snælda, Rauða klemman - 939 áhorfendur á 16 sýningum
- 11. Leikfélag Mosfellssveitar, Allskonar Elvis - 900 áhorfendur á 9 sýningum
-
12. Leikfélag Sauðárkróks, Svefnlausi brúðguminn - 900 áhorfendur á 11 sýningum
- 13. Leikfélag Sauðárkróks, Jón Oddur og Jón Bjarni - 865 áhorfendur á 11 sýningum
- 14. Leikfélag Ölfuss, Stútungasaga - 850 áhorfendur á 15 sýningum
- 15. Leikfélag Keflavíkur, Bærinn bræðir úr sér - 837 áhorfendur á 11 sýningum
- 16. Umf. Gnúpverja, leikdeild, Gaukssaga - 800 áhorfendur á 9 sýningum
- 17. Litli leikklúbburinn, Á skíðum skemmti ég mér - 760 áhorfendur á 5 sýningum
- 18. Leikfélag Keflavíkur, Slappaðu af - 671 áhorfendur á 11 sýningum
- 19. Leikfélag Hólmavíkur, Með táning í tölvunni - 660 áhorfendur á 9 sýningum
- 20. Leikfélag Fljótsdalshéraðs, Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan - 645 áhorfendur á 8 sýningum.