Uppskeruhátíð barna- og unglingastarfs GSS
Uppskeruhátíð Golfklúbbs Sauðárkróks var haldin mánudaginn 9. september á Hlíðarendavelli og var mæting ljómandi góð samkvæmt heimasíðu félagsins. Farið var yfir sumarstarfið og helstu viðburði en um þá er hægt að lesa á heimasíðunni enda er hún vel uppfærð af fréttum golfstarfsins.
„Við skelltum á laufléttri púttkeppni og urðu úrslitin þau að Þórgunnur Þórarinsdóttir sigraði í 10 ára og yngri flokknum, Hákon Ingi Rafnsson sigraði í 11-14 ára flokknum og í 15 ára og eldri flokknum sigraði Aldís Ósk Unnarsdóttir. Allir iðkendur fengu gjöf frá KPMG og Golfklúbbnum,“ segir á gss.is.
Veittar voru viðurkenningar eftir sumarið og fengu þau Aldís Ósk Unnarsdóttir, Arnar Freyr Guðmundsson og Hildur Heba Einarsdóttir viðurkenningu fyrir bestu ástundun. Fyrir mestu framfarir fengu þau Telma Ösp Einarsdóttir og Hákon Ingi Rafnsson viðurkenningu. Að lokun voru bestu kylfingarnir útnefndir. Það voru þau Matthildur Kemp Guðnadóttir og Elvar Ingi Hjartarson.
Að endingu var svo heljarinnar pizzuveisla fyrir allan hópinn og allir fóru glaðir og sælir heim.