Uppskeruhátíð hestamanna í Skagafirði í máli og myndum

Bjarni Jónasson var útnefndur knapi ársins í Skagafirði 2015. Mynd: Rósa Vésteinsdóttir.
Bjarni Jónasson var útnefndur knapi ársins í Skagafirði 2015. Mynd: Rósa Vésteinsdóttir.

Uppskeruhátíð hrossaræktenda og hestamannafélaganna í Skagafirði var haldin í Ljósheimum föstudaginn 27. nóvember. Þar komu hestamenn í Skagafirði saman og fögnuðu góðum árangri ársins sem senn er að ljúka og tóku á móti viðurkenningum. Unnust margir stórir sigrar og Íslandsmeistaratitlar á árinu.

Texti: Þórarinn Eymundsson, Guðmundur Þór Elíasson og Kristín S. Einarsdóttir. Myndir: Rósa Vésteinsdóttir og Þórarinn Eymundsson.

Verðlaun fyrir reiðmennsku voru veitt af hestaíþróttaráði UMSS. Í barnaflokki hlaut Stefanía Sigfúsdóttir verðlaun sem knapi ársins, Guðmar Freyr Magnússon í unglingaflokki og í ungmennaflokki Finnbogi Bjarnason. Hestaíþróttaknapi ársins er Þórarinn Eymundsson og knapi ársins Bjarni Jónasson. Bjössabikarinn, sem gæðingaknapi ársins, hlaut Magnús Bragi Magnússon, en sá bikar er gefinn í minningu Sigurbjörns Þorleifssonar frá Langhúsum.

Barnaflokkur

Í barnaflokki voru tilnefnd Freyja Þórdís Bergsdóttir, Guðný Rúna Vésteinsdóttir, Stefanía Sigfúsdóttir. Knapi ársins var Stefanía Sigfúsdóttir. Hún stóð sig vel á árinu; var stigahæsti knapinn í Skagfirsku mótaröðinni, var í 1. sæti í fjórgangi og 3. Sæti í tölti á WR mótinu á Hólum., var í 1. sæti á stórmóti Þjálfa á Einarsstöðum og í 2. sæti bæði í tölti og fjórgangi á unglingalandsmóti UMFÍ.

 

 

 

 

 

UnglingaflokkurÍ unglingaflokki voru tilnefnd Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Guðmar Freyr Magnússon, Viktoría Eik Elvarsdóttir og Þórdís Inga Pálsdóttir. Knapi ársins í unglingaflokki var Guðmar Freyr Magnússon. Var Guðmar þrefaldur Íslandsmeistari en hann vann bæði í gæðingaskeiði og 100m skeiði og var einnig samanlagður Íslandsmeistari í fimmgangsgreinum. Þá var hann í 6. Sæti í tölti og 9. Sæti á Íslandsmótinu. Hann vann tvö gull á landsmóti UMFÍ og tvö silfur. Hann vann unglingaflokk á stórmóti Þjálfa á Einarsstöðum og var í þriðja sæti í 100m skeiði og tölti. Hann vann 110m skeið á stórmóti Funa á Melgerðismelum og var í 3. Sæti í A flokki gæðinga. Svo mætti lengja telja upp.

 

 

 

UngmennaflokkurÍ ungmennaflokki voru tilnefnd Finnbogi Bjarnason, Jón Helgi Sigurgeirsson og Sonja S. Sigurgeirsdóttir. Knapi ársins í ungmennaflokki var Finnbogi Bjarnason en hann var í þremur A úrslitum á Íslandsmótinu og var í 2. sæti í stjörnutöltinu á Akureyri. Hann vann bæði tölt og gæðingakeið á WR mótinu á Hólum og var í 2. sæti í fimmgang og fjórgang. Var í 2. Sæti í tölti opnum flokki á vormóti Léttis á Akureyri. Vann tölt á opnu íþróttamóti Þyts á Hvammstanga. Svo mætti lengi halda áfram.

Til gæðingaknapa ársins voru tilnefndir Magnús Bragi Magnússon, Skapti Steinbjörnsson og Þórarinn Eymundsson. Gæðingaknapi ársins var Magnús Bragi Magnússon, en hann vann B-flokk á Fákaflugi og var í 4. sæti í A-flokki, var í 1. sæti á Einarsstöðum í B-flokki og 4. sæti í A-flokki, auk þess að koma fjórum hrossum í í úrslit í B-flokki. Þá var hann í 2. sæti í A-flokki á stórmóti Funa og 4. sæti í B-flokki.

 

 

 

 

 

Til íþróttaknapa ársins voru tilnefndir Bjarni Jónasson, Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson. Íþróttaknapi ársins var Þórarinn Eymundsson, en hann vann KS deildina, var í 3. Sæti í fimmgangi og 5. Sæti í 100m skeiði á Íslandsmótinu. Hann vann fimmgang á WR mótinu á Hólum og var í 2. Sæti í slaktaumatölti. Hann vann fjórfalt á Vormóti Léttis á Akureyri; fimmgang, fjórgang, tölt og 100m skeið. Hann vann einnig fimmgang og tölt í skagfirsku mótaröðinni.

Til knappa ársins voru tilefndir sömu einstaklingar, Bjarni Jónasson, Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson. Knapi ársins var Bjarni Jónasson en hann var í 7. sæti í tölti á Íslandsmótinu, var í 2. Sæti í KS deildinni. Þá vann hann tölt og var annar á WR mótinu á Hólum. Vann einnig fjórgang og fimmgang á íþróttamóti á Hvammstanga. Var í fyrsta sæti í tölti og fimmgangi á stórmóti Hrings á Dalvík. Var í fyrsta sæti í 100m skeiði á Svissneska meistaramótinu. Var í 1. sæti í tölti á Fákaflugi og 3. Sæti á Stjörnutölti og auk þess sýndi hann 22 hross í fullnaðardómi og meðaleinkunn þeirra var 8,14.

Kynbótaverðlaun

Hrossaræktarsamband Skagfirðinga veitti viðurkenningar fyrir þrjú hæst dæmdu kynbótahross í hverjum aldursflokki, sem komið hafa til dóms á árinu. Skilyrði var að hrossin væru úr ræktun Skagfirðinga Sörlabikarinn fyrir hæst dæmda kynbótahross úr ræktun og í eigu Skagfirðings, gefinn af Sveini Guðmundssyni, hlaut blær frá Miðsitju. Kraftsbikarinn er veittur þeim knapa sem nær bestum árangri við sýningu kynbótahrossa á árinu og er hann gefinn af Eymundi Þórarinssyni. Kraftsbikarinn í ár hlaut Bjarni Jónasson. Ófeigsbikarinn er gefinn af Ófeigsfélaginu. Er hann veittur ræktunarbúi Skagafjarðar og voru það Sauðárkrókshestar sem hlutu hann í ár.

Eftirfarandi stóðhestar hlutu verðlaun í hverjum flokki: (engar fjögurra vetra hryssur komu til dóms á árinu).

4 vetra stóðhestar:

Stormur frá Stokkhólma, í eigu Einars Ólafssonar og Önnu S. Sigmundsdóttur.

Pílatus frá Þúfum, í eigu Mette Camille Moe Mannseth.

Bandvöttur frá Miklabæ í eigu Agnars Gunnarssonar og Ingimars Jónssonar.

5 vetra stóðhestar.

Mjöður frá Hofi á Höfðaströnd í eigu Hofstorfunnar slf.

Örn frá Brimnesi, í eigu Carsten Lissau/ Vesturkots ehf.

Hlekkur frá Ytra-Vallholti, í eigu Vallholts ehf.

5 vetra hryssur.
Stekkja f. Brimnesi, í eigu Ólafs Bjarna Andréssonar.

Þórdís frá Prestsbæ, í eigu Ingu & Ingars Jensen/ Prestsbær ehf.

Sara frá Stóra-Vatnsskarði, í eigu Hans Þórs Hilmarssonar.

6 vetra stóðhestar.
Hlekkur frá Saurbæ, í eigu Péturs Arnar Sveinssonar og Heiðrúnar Óskar Eymundsdóttur.

Styrkur f. Stokkhólma, í eigu Einars Ólafssonar og Rúnar F. Rúnarsson.

Svaði frá Hólum, í eiguTorsten Reisinger og Carolin Winter.

6 vetra hryssur.
Sólrún frá Veðramóti, í eigu Anne Jarvinen.

Kátína frá Ytra-Vallholti, í eigu Vallholts ehf.

Bylgja frá Sauðárkróki, í eigu Pétus Vopna Sigurðssonar og Sigríðar Pétursdóttur.

7 vetra hryssur.
Hnota frá Stóra-Vatnsskarði, í eigu Nicole Pfau.

Birta f. Laugardal, í eigu Magnúsar B. Magnússonar og Þorvarðar Björgúlfssonar.

Þota f. Prestsbæ, í eiguIngu & Ingars Jenssen/ Prestsbær ehf.

7 vetra stóðhestar.

Sálmur frá Ytra-Skörðugili, í eigu Kine Nordbrekken.

Nökkvi frá Syðra-Skörðugili, í eigu Nökkvafélagsins ehf..

Blær frá Miðsitju, í eigu Miðsitju ehf./ Tryggva Björnssonar.

Fleiri fréttir