Úrslit í fjallaskokki USVH
Eins og fjallað var um í máli og myndum hér á vefnum fór hið árlega fjallaskokk Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga fór fram 25. júlí síðastliðinn og voru þátttakendur 43 talsins.
Alls voru 16 skráðir í keppnishóp en 27 voru skráðir í gönguhóp og kepptu því ekki til verðlauna. Sigríður Klara Böðvarsdóttir varð fljótust kvenna en Egill Egilsson sigraði í karlaflokki.
Í fjallaskokki USVH er gengið, skokkað og hlaupið frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Þetta er um 12 km leið og hækkun á milli 400-500 metrar.
Úrslit eru birt á vef USVH og urðu þau þessi:
Ein stelpa var skráð til keppni í flokki 15 ára og yngri.
Anna Eva Steindórsdóttir 107 1.49:10
Sex konur voru skráðar til keppni í flokki 16-49 ára.
Sigríður Klara Böðvarsdóttir Tími: 1.39:35
Guðfinna Halla Þorvaldsdóttir Tími: 1.41:55
Bryndís Haraldsdóttir Tími: 1.57:11
Ögn Þórarinsdóttir Tími: 2.06:38
Margrét Ásbjarnardóttir Tími: 2.07:27
Þorbjörg Ásbjarnardóttir Tími: 2.08:31
Níu karlar voru skráðir til keppni í flokki 16-49 ára.
Egill Egilsson Tími: 1.25:53
Hrafn Margeirsson Tími: 1.28:27
Eyjólfur Sigurðsson Tími: 1.29:13
Ari Hermann Oddsson Tími: 1.36:05
Þorsteinn Austri Björnsson Tími: 1.37:00
Ingvar Stefánsson Tími: 1.38:04
Friðrik Karlsson Tími 1.44:56
Björn Hermannsson Tími: 1.45:09
Hrólfur Gestsson Tími: 1.54:28