Úrslit í upplestrarkeppni Árskóla
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
03.03.2015
kl. 09.50
Upplestrarkeppni 7. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki fór fram í síðustu og stóðu nemendur sig með mikilli prýði, eins og sagt er frá á vef skólans. Lokakeppnin fer fram á sal FNV þriðjudaginn 10. mars.
Eftirtaldir nemendur komust í úrslit og keppa í lokakeppninni sem fram fer í sal FNV, þriðjudaginn 10. mars: Diljá Ægisdóttir, Rannveig Sigrún Stefánsdóttir, Hildur Heba Einarsdóttir, Magnús Eyþór Magnússon, Birgitta Björt Pétursdóttir og Sólrún Silfá Guðmundsdóttir. Varamenn: Sindri Már Gústavssson og Magnús Logi Sigurjónsson.