Út við himinbláu sundin - Viltu vinna þér inn miða?
Þann 25. apríl verða haldnir tónleikar á Mælifelli á Sauðárkróki sem ber heitið Út við himinbláu sundin. Þar verða gömlu góðu söngkonurnar heiðraðar og saga þeirra rifjuð upp í tali og tónum ásamt gömlu lögunum sem þær gerðu vinsæl og hafa lifað með þjóðinni í mörg ár.
Hér er verið að tala um söngkonur eins og Svanhildi Jakobs, Erlu Þorsteins, Erlu Stefáns, Hallbjörgu Bjarna, Öddu Örnólfs, Soffíu Karls, Helenu Eyjólfs, Mjöll Hólm og fleiri. Það er hún Hulda Jónasar sem er hugmyndasmiður og skipuleggur viðburðinn en henni til halds og traust á sviðinu eru þær Mjöll Hólm og Helena Eyjólfs sjálfar ásamt Hugrúnu Sif, Hreindísi Ylvu og Sigurlaugu Vordísi. Hljómsveitarstjóri er Rögnvaldur Valbergsson en sögumaður og kynnir Valgerður Erlingsdóttir.
Þú getur unnið þér inn tvo miða á tónleikanna með því að senda rétt nöfn söngkvennanna tveggja á myndunum á netfangið palli@feykir.is eigi síðar en mánudaginn 8. apríl nk.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.