Útgáfuhátíð vegna útkomu Skagfirðingabókar

Útgáfuhátíð vegna Skagfirðingabókar 36, fyrir árið 2015, verður haldin á Kaffi Króki á Sauðárkróki laugardaginn 7. nóvember nk. kl. 14-16. Kynnt verður efni bókarinnar, sérstaklega höfuðgreinin sem Sölvi Sveinsson hefur tekið saman um Króksarana frá Jótlandi, Minnu og Ole Bang.

Það er Hjalti Pálsson frá Hofi sem kynnir efni bókarinnar en síðan munu Brynjar Pálsson og Páll Brynjarsson spjalla við gesti og segja frá Apótekarahjónunum með sínu lagi.

Það er Sögufélag Skagfirðinga sem gefur Skagfirðingabók út. Bókin er 192 bls að stærð og prýdd miklum fjölda ljósmynda. Efnið Skagfirðingabókar er fjölbreytt að vanda því að tíu aðrar greinar eru í bókinni. Þær nefnast: Dulrænar sagnir Sverris Björnssonar frá Viðvík. Frostavetur [1917-1920] eftir Björn í Bæ. Frá Bændanámskeiðinu á Hólum 1925 búið til prentunar af Sölva Sveinssyni. Jón Margeir eftir Hjalta Pálsson. Af Goðdalaprestum eftir Jón R. Hjálmarsson. Skírnarfonturinn í Hóladómkirkju eftir Sigurjón Pál Ísaksson. Víkurskólinn eftir Klemens Guðmundsson. Sumarferðalag til Skagafjarðar 1947 eftir Nönnu Hermannsson. Minningabrot Steinunnar Hjálmarsdóttur og Hrap í Drangey 1952.

Bókin verður til sölu á Kaffi Króki á meðan á kynningu stendur. Léttar veitingar og allir velkomnir.

Fleiri fréttir