Úthlutun á styrkjum úr Menningarsjóði Sparisjóðar Skagafjarðar

Sparisjóðurinn hefur síðastliðin ár styrkt myndarlega við bakið á ýmsum menningarverkefnum en með því skrefi að stofna formlega menningarsjóð vonast Sparisjóðurinn eftir að meiri formfesta komist á úthlutun stykja. Þessi úthlutun er sú fyrsta, vonandi í hópi margra til menningarmála í Skagafirði. Að þessu sinni var sótt um styrki fyrir um 5,3 milljónir en úthlutað var um 1,5 milljónum króna. Sparisjóðurinn vonar að hægt verði að efla sjóðinn þannig að úthlutunarupphæðin hækki á komandi árum. Stefnt er að því að í framtíðinni verði styrkjum úthlutað tvisvar á ári.

Að þessu sinni hlutu eftirtaldir aðilar styrk:

Skagafjarðarhraðlestin – Lummudagar

Geirmundur Valtýsson – Jólatónleikar

Lafleur – Fantasíur og ljóðmyndir

Kakalaskáli – Leiðsögubæklingur

Kakalaskáli – Eftirprentanir á listaverkum

Skagfirskir strengir – Tónleikaferð

Samgönguminjasafn – Framkvæmdir við safnið

Tónlistarhátíðin Gæran – Tónlistarhátíð

Kvennakórinn Sóldís – Tónleikar

Skagfirski kammerkórinn – Haustdagskrá

Fornverkaskólinn – Námskeið í vefnaði

Byggðasafn Skagfirðinga – Útgáfa

Grundarhópurinn – Menningarhátíð

Markvert ehf – Sýning

Maddömur – Endurbætur á húsnæði

Gísli Þór Ólafsson – Bláar raddir, geisladiskur

Kirkjukór Glaumbæjarprestakalls – Útgáfa geisladisks

.

Fleiri fréttir