Úthlutun úr Menningarsjóði KS fór fram í gær
Í gær fór fram í húsakynnum Kjarnans á Sauðárkróki úthlutun úr Menningarsjóði KS að viðstöddum fulltrúum þeirra verkefna sem hlutu styrki hans að þessu sinni. Alls fengu þrettán verkefni fjárupphæðir sem ekki voru tilgreindar nánar fyrir utan barnastarf kirkjunnar í Skagafirði.
Sauðárkróksprestakall, Glaumbæjar-Reynistaðar-og Víðimýrasóknir, Miklabæjar-og Mælifellssóknir, Hofsós – og Hólasóknir fengu sérstakan styrk upp á tvær milljónir króna sem renna á til barna og æskulýðsstarfs í Skagafirði. Dalla Þórðardóttir prófastur tók við styrknum en hún mun halda utan um verkefnið.
Þá var nýr afreksbikar kynntur til sögunnar og afhentur í fyrsta sinn en hann verður í framtíðinni veittur sem viðurkenning fyrir starf á sviði æskulýðs- og íþróttamála á Skagafirði. Þetta verkefni var sett í gang í haust til þess að minnast Stefáns Guðmundssonar fv. stjórnarformanns KS og konu hans Hrafnhildar Stefánsdóttur og verður það í höndum barna þeirra að ákveða hver hlýtur bikarinn hverju sinni. Það var ungur Sauðkrækingur sem varð fyrir valinu að þessu sinni Atli Arnarson sem getið hefur sér góðs orðspors á knattspyrnuvellinum þrátt fyrir ungan aldur.
Aðrir sem hlutu styrki voru:
01. Rökkurkórinn - Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.
02. Karlakórinn Heimir - Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.
03. Kirkjukór Sauðárkrókskirkju - Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.
04. Sönghópur félags eldri borgara í Skagafirði - Fjárstuðningur vegna starfsemi kórsins.
05. Jón Ormar Ormsson - Styrkur vegna menningarmála.
06. Sólon, áhugahópur um myndlist í Skagafirði - Fjárstuðningur til styrktar starfsemi hópsins.
07. Skotta kvikmyndafjelag - Fjárstuðningur vegna upptöku á myndinni Óskasteinn- Með vonina að vopni.
08. Samgönguminjasafn Skagafjarðar - Fjárstuðningur vegna uppbyggingar á safninu
09. Ungmennasamband Skagafjarðar - Fjárstuðningur vegna rekstur félagsins.
10. Skotfélagið Ósmann - Fjárstuðningur vegna kynningar á bogfimi og búnaði henni tengdri.
11. Alþýðulist – félag handverkafólks í Skagafirði - Fjárstuðningur vegna starfsemi félagsins.
12. Félag harmóníkuunnenda í Skagafirði - Fjárstuðningur vegna uppsetningar á framhaldssýningunni við sýningarnar „ Manstu gamla daga“