Útilífsdagur barnanna - Myndir
Útilífsdagur barnanna var haldinn í gær, sunnudaginn 7. júlí. Mikill fjöldi var mættur til að taka þátt og leika sér úti, en um 150 manns voru mættir á svæðið.
,,Við vorum í skýjunum með bæði þátttöku og hvað allir voru virkir og áhugasamir að taka þátt og vera með,” sagði Pálína Ósk Hraundal, einn af skipuleggjendum Útilífsdagsins.
Krakkarnir fengu að elda á báli, nota norrænar útilífsaðferðir, heyra sögur og margt fleira.
.