Útilífsdagur barnanna þann 7. júlí

Ferðafélag barnanna kynnir í samstarfi við Ferðafélag Skagfirðinga og Drangeyjarferðir útilífsdag barnanna þann 7. júlí nk.

Útilífsdagur barnanna er að norskri fyrirmynd, ,,Kom deg ut – dagen”, sem er haldinn ár hvert víðsvegar í Noregi.

Tilgangur dagsins er að börn fái áhuga á útilífi og skagfirskri náttúru.
Einnig að þau læri að nýta sér það hráefni sem náttúran hefur upp á að bjóða.

Dagskrá dagsins:

• Kennsla í útieldun
• Ratleikur
• Þrautir
• Ævintýraleikir
• Málað á steina og viðarspýtur
• Föndrað úr efni náttúrunnar
• Fangað augnablikið með ljósmynd og örstutt kennsla í hvernig best er að fanga myndefni í náttúrunni

Hvað þarf að hafa með þennan dag:

• Hráefni til útieldunar (Við birtum uppskriftir og hugmyndir hér inn á síðuna alveg fram að viðburði)
• Myndavél
• Plastbox
• Áttaviti
• Kíkir
• Vasahnífur til að tálga
• Fatnaður eftir veðri
• Stígvél

Dagur: 7. júlí

Tími: 13:00-16:00

Staðsetning: Reykir á Reykjaströnd í Skagafirði. Hittumst við Grettis Café.

Þátttökugjald: ókeypis

Nánari upplýsingar: Pálína Ósk Hraundal palinaosk@gmail.com og sviggosdottir@gmail.com , Sími: 868-8018

Sjáumst kát og hress á Reykjum sunnudaginn 7.júlí! Hægt er sjá viðburðinn og tilkynna um mætingu á facebook.

Fleiri fréttir