Útivist og upplifun

Í fyrstu lotu haustannar við Háskólann á Hólum eru flestir 3. árs nemar í BA-námi í ferðamálafræðum skráðir í námskeiðið Útivist og upplifun. Á námskeiðinu er mikil áhersla lögð á að nemendurnir spreyti sig á hagnýtum verkefnum, og þá gjarna í samvinnu við Grunnskólann (austan Vatna) að Hólum. Er óhætt að segja að báðir skólar njóti góðs af þessu samstarfi.

 

Þessa viku hefur viðfangsefnið einmitt verið Börn og útivist, og staðnemarnir fengu nemendur grunnskólans á Kollugerðinu til liðs við sig. Kennarinn á námskeiðinu er Pálína Ósk Hraundal. Í næstu viku verða fjarnemar í námskeiðinu kallaðir heim í Hóla. Veðurspáin bendir til þess að þeir læri að klæða sig vel!

/Holar.is

Fleiri fréttir