Útlit fyrir rýra kornuppskeru

Kornskurður hófst í gær í Skagafirði en ljóst er að uppskeran verður mun rýrari en undanfarin ár. Má þar kenna um slæmu vori, miklum þurrkum í sumar og frostnóttum í ágúst.

 

Einar Valur Valgarðsson hjá Þreski segir kornið smátt og lítið af því. Sáð var í um 500 hektara í Skagafirði en ekki sé vitað með vissu hversu mikið verður þreskt af því, þar sem margir brugðu á það ráð í ágúst að slá akrana í grænfóður. Einar segir að það sé gert ef bændur sjá fram á það að kornið verði lélegt.

Eiríkur Loftsson ráðunautur Leiðbeiningarmiðstöðvarinnar í Skagafirði segir ekki útséð með gæði kornsins sem þreskt verður í haust en líklega verði það ekki jafngott og undanfarin ár og gæði grænfóðursins sé ekki sérstök enda neyðarbrauð að verka í það.

Að sögn Einars Vals fer allt á fullt í að þreskja í næstu viku og vonast hann til að tíðin verði hagstæð en það er forsenda fyrir því að takist að ná korninu upp á tilsettum tíma. Oft hefur gengið vel en árið 2005 segir Einar að hafi viðrað illa og síðasti akurinn tekinn 20. desember.

Fleiri fréttir