Vel heppnað Herrakvöld

Körfuknattleiksdeild Tindastóls stóð fyrir herrakvöldi síðasta laugardagskvöld á Kaffi Krók og tókst með ágætum. Vel á fyrsta hundrað manns mætti prúðbúið og hresst og gæddi sér á góðum mat og hlýddi á gamanmál. Var Stefán Jónsson formaður deildarinnar ánægður með afrakstur kvöldsins án þess þó að vilja upplýsa hve mikið safnaðist af aurum.

Júlíus Jóhannsson kenndi unga fólkinu hvernig ætti að framkvæma ýmis strákapör eins og gert var á Króknum í gamla daga. Hér er hann lengst til hægri ásamt hljómsveit hússins.

Veislustjóri var fenginn úr borginni og fór hann á kostum með gamansögum frá æskuárum sínum á Króknum en óhætt er að segja að Júlíus Jóhannsson hafi verið uppátækjasamur drengur.

300 happdrættismiðar voru gefnir út og seldust þeir allir enda vinningar af ýmsum gerðum og margir hverjir stórglæsilegir. Aðalvinningurinn var reiðhjól sem kom í hlut hins reynslumikla körfuboltaleikmanns Svavars Birgissonar.  Þá var heljarmikið uppboð haldið þar sem hart var barist um hluti, svo hart að einn bauð á móti sjálfum sér og hækkaði boðið um 5000 krónur.

Tríó Pilla Prakkó flutti tvær ódauðlegar perlur Meistara Megasar en hér sést Geir Eyjólfsson munda hið fágæta hljóðfæri rokkfork.

Tríó Pilla Prakkó sté á stokk og að þessu sinni var það alfarið skipað Molduxum sem komu vel undirbúnir til leiks. Vakti hljóðfæraskipan sumra athygli enda óhefðbundin hljóðfari notuð í einhverjum tilfellum s.s. eins og járnbindi, rokkforkur og blekkingarbassi.

Til skemmtunar voru einnig þeir Gunni Óla og Hebbi, sem þekktir eru fyrir Skítamóral. Stóðu þeir vaktina ásamt Sigga Dodda fram undir morgun.

Svavar Birgisson hlaut aðalhappdrættisvinning kvöldsins. "Reiðhjól fyrir frúna," eins og hann sagði sjálfur.

Fleiri fréttir