Verðmætabjörgun í Fljótum

Frá björgunaraðgerð við Hraun í Fljótum. Mynd: mbl.is/Baldur Ingi Baldursson.
Frá björgunaraðgerð við Hraun í Fljótum. Mynd: mbl.is/Baldur Ingi Baldursson.

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit stóð í stórræðum í gær við verðmætabjörgun eftir að fiskflutningabíll fór út af veginum rétt  við bæinn Hraun í Fljótum. Tólf meðlimir sveitarinnar sinntu útkallinu. Um sjö klukkustundir tók að sækja fiskinn sem dreifst hafði upp um alla móa. Morgunblaðið greindi frá þessu.

Í samtali við Baldur Inga Baldursson formann sveitarinnar, kemur fram að tryggingafélag hafi kallað sveitina út og boðið þeim að taka verkefnið að sér gegn greiðslu. Um mikil verðmæti var á ræða enda tugir kara af fiski í bílnum og tókst að ná því megninu af því upp. Var fiskurinn svo sendur til skoðunar til að ganga úr skugga hvort hann væri enn hæfur til sölu. Vonir stóðu til að svo væri enda nægur snjór á staðnum til að halda fiskinum köldum.

Bíllinn var að koma frá Siglufirði þegar óhappið varð. Bærinn Hraun er mun nær Siglufirði en vegna snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi var Skagfirðingasveit á staðinn.

Á vef mbl. má sjá stutt myndskeið frá björgunaraðgerðum.

Fleiri fréttir