Verður KS eigandi að Olís
Kaupfélag Skagfirðinga og Samherji eru meðal þeirra fjárfesta sem reiða fram nýtt hlutafé í Olíuverslun Íslands samkvæmt frétt í Viðskiptablaðinu í gær. Þar segir að samningar þess efnis séu langt á veg komnir.
Leit að fjárfestum hefur staðið yfir um nokkurt skeið en samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins eru aðilar tengdir Samherja og Kaupfélagi Skagfirðinga meðal fjárfesta, en stefnt er að því að hópurinn verði breiður.
Þær upplýsingar fengust hjá KS að ekki væri búið að gera málið opinbert enn þá og því tjái félagið sig ekki um það á þessu stigi.