Vetrarrós fæðist á fjalli

Þann 25. nóvember sl. var smalað heim ám sem sleppt hafði verið upp á fjall um hreppaskil í Lýtingsstaðarhreppi. Ærin Rósa frá Bakkakoti var þar á meðal og fylgdi henni tæplega mánaðargamalt lamb sem var sérlega óvæntur glaðningur þar sem Rósa hafði verið geld í vor.

„Það er mjög sjaldgæft að fá lamb á þessum tíma, þetta hefur ekki gerst síðan 1949 hjá okkur. Þetta var mjög óvænt, sérstaklega vegna þess að við bjuggumst ekki við lambi hjá þessari kind af því að hún var geld í vor,“ sagði Katarína frá Bakkakoti.

Rósa var í Hofsafrétt þegar hún átti lambið sem er gimbur og heitir Vetrarrós. Að sögn Katarínu er Vetrarrós hjá mömmu sinni sem stendur.

Fleiri fréttir