Vetrarstarf kóranna að hefjast

Vetrarstarf skagfirskra kóra er nú að komast í fullan gang og æfingar að hefjast á ný eftir sumarfrí. Í Sjónhorninu í dag kemur fram á æfingar hjá Rökkurkórnum hefjast á sunnudagskvöldið kl 20:30 í Miðgarði. Hjá sönghópi Félags eldri borgara í Skagafirði hefjast æfingar í Ljósheimum á miðvikudaginn kemur kl 15:00.

Æfingar hófust hjá kvennakórnum Sóldísi seinnipartinn í september og bættust þá sex nýjar söngdívur í kórinn sem nú telur 46 meðlimi.

Á heimasíðu Karlakórsins Heimis kemur fram að þar hefjast æfingar á ný mánudaginn 14. október.

Þeir sem ánægju hafa af því að syngja í kór eða hlusta á kórsöng ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í vetur.

Fleiri fréttir