Viðauki samþykktur sem leiðir til jákvæðrar rekstararniðurstöðu

Sveitarstjórn Húnaþins vestra samþykkti viðauka við þriggja ára fjárhagsáætlun Húnaþings vestra og fyrirtækja fyrir árin 2014, 2015 og 2016 á fundi sínum sl. föstudag þar sem niðurstaða rekstaráætlana fyrir umrædd ár leiðir til jákvæðari rekstararniðurstöðu fyrir sveitarsjóð og fyrirtæki.

Í fundargerð kemur fram að í viðaukanum hefur verið tekið tillit til ábendinga Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Forsendur endurskoðunarinnar eru að gjaldaliðir og þjónustutekjur auk fasteignatengdra gjalda eru hækkuð miðað við áætlaða vísitölu neysluverðs skv. þjóðhagsspá.

Þá er launakostnaður, útsvar og framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hækkuð í samræmi við launavísitölu þjóðhagsspár. Gert er ráð fyrir óbreyttri starfsemi og íbúafjölda í sveitarfélaginu á gildistíma áætlunarinnar.

 

Fleiri fréttir