Viðauki við fjárhagsáætlun tæpar 30 milljónir

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar voru samþykktir viðaukar við fjárhagsáætlun 2013 annars vegar vegna áætlunarflugs á milli Sauðárkróks og Reykjavíkur og hins vegar vegna gatnagerðar. Alls nemur upphæðin tæpum 30 milljónum króna. Bókun frá 629. fundi byggðarráðs þann 27. júní 2013 vegna samgöngumála var lögð fram til staðfestingar á fundi sveitarstjórnarinnar og er eftirfarandi:

"Vegna samnings á milli Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Air Arctic um áætlunarflug á milli Sauðárkróks og Reykjavíkur, þarf að gera viðauka á fjárhagsáælun ársins 2013. Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar samþykkir að hækka fjárheimildir málaflokks 10890 um 7.700.000 kr. Fjármögnuninni mætt með lántöku."

Sigurjón Þórðarson og Stefán Vagn Stefánsson kvöddu sér hljóðs áður en málið var borið undir atkvæði en það var samþykkt á 304. fundi sveitarstjórnar með átta atkvæðum, einn fulltrúi sat hjá.

Vegna framkvæmda var bókun frá 633. fundi byggðarráðs þann 8. ágúst 2013 lögð fram til staðfestingar á fundinum:

"Lögð fram tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun 2013. Um er að ræða hækkun á framkvæmdalið eignasjóðs vegna gatnagerðar, að upphæð 22.000.000 kr."

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að hækka framkvæmdalið eignasjóðs um 22.000.000 kr. og mætt með aukinni lántöku.

Sigurjón Þórðarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra situr hjá við afgreiðslu viðaukans, þar sem að ekki hafa enn fengist svör um hver skuldastaða sveitarfélagsins verði í lok ársins miðað við þær breytingar sem eru fyrirséðar á samþykktri fjárhagsáætlun.

Ásta Björg Pálmadóttir kvaddi sér hljóðs, þá Stefán Vagn Stefánsson, Sigurjón Þórðarson, Ásta Björg Pálmadóttir, Þorsteinn Tómas Broddason, Ásta Björg Pálmadóttir.

Viðaukinn var að lokum borinn undir atkvæði og samþykktur með átta atkvæðum.

Fleiri fréttir