Viðurkenningar fyrir gott aðgengi
Í gær afhenti Sjálfsbjörg í Skagafirði, af tilefni Alþjóðadegi fatlaðra sem haldinn var laugardaginn 3. des., fyrirtækjum og stofnunum á Sauðárkróki viðurkenningar fyrir að hafa gert aðgengi hjá sér sem best fyrir hreyfihamlað fólk en helstu mál Sjálfsbjargar eru m.a. að stuðla að því að aðgengi sé fyrir alla við verslanir, stofnanir, fyrirtæki og götur bæja og borga.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður félagsins sagði af þessu tilefni að auk þess að vekja athygli samfélagsins á þessum degi væru aðgengismálin ofarlega á baugi hjá félaginu. Þar hafa fjórir einstaklingar sem á einn eða annan hátt þurft að glíma við erfið aðgengismál annað hvort sín vegna eða sinna nánustu beitt sér fyrir aðgengismálum en sá sem hefur helst hefur haft veg og vanda að úttekt á aðgengismálum hér í bæ er Jón Karlsson. Hin eru Ólafur R. Ólafsson, Sigríður Gunnarsdóttir og Þuríður Harpa.
Jón sagði að alsstaðar þar sem hann kom í sínum úttektum hafi hann mætt góðum vilja til úrbóta og sagðist vona að á næsta ári væru fleiri sem myndu hljóta viðurkenningar fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra.
Viðurkenningar nú komu í hlut Pósthússins, Kjarnans, leikskólans Ársala, Fjölbrautaskólanum, Ráðhússins, Skagfirðingabúðar, Verslunarinnar Eyri, Heilbrigðisstofnunarinnar og Endurhæfingardeildar.