Viðurkenningar fyrir snyrtimennsku og einstakt framtak
Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa nú verið veittar í níunda sinn, en þær eru veittar í samstarfi við Soroptimistaklúbb Skagafjarðar. Farnar eru tvær ferðir yfir sumarið um allt sveitarfélagið, bæði dreifbýli og þéttbýli og auglýst eftir tillögum frá almenningi. Afhendingin fór fram í Húsi frítímans í gær og voru viðurkenningar veittar í sjö flokkum að þessu sinni.
Í tilkynningu frá Soroptimistaklúbbnum segir að að loknum skoðunarferðum er valið úr hópi tilnefninga í samráði við garðyrkjustjóra Sveitarfélagsins. Lögð sé áhersla á að vanda val á þeim sem umhverfisviðurkenningarnar hljóta því margt hefur gott verið gert í þeim efnum.
Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2013 fengu:
Sauðárkróksbakarí fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegasta umhverfi fyrirtækis.
· Syðra-Skörðugil fyrir snyrtilegasta sveitabýlið með hefðbundnum búskap. Þar búa Sólborg Una Pálsdóttir og Einar Eðvald Einarsson.
· Lindabær fyrir snyrtilegasta sveitabýlið án hefðbundins búskapar. Þar búa Helga Stefánsdóttir og Sigmar Jóhannsson.
· Skagfirðingabraut 11 á Sauðárkróki fyrir snyrtilegustu lóðina í þéttbýli. Þar búa Halla Rögnvaldsdóttir og Haukur Steingrímsson.
· Sauðárkróksbakarí fyrir snyrtilegasta umhverfi fyrirtækis
· Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki fyrir snyrtilegasta umhverfi stofnunar.
· Skotfélagið Ósmann sem einstakt framtak.
· Smáragrund á Sauðárkróki fyrir snyrtilegustu götuna í þéttbýli.