Vilja banna upprekstur búfjár á afrétt Skagfirðinga

Á aðalfundi Samtaka dragnótamanna sem haldinn var á Fosshótel Lind 26. nóvember sl. var samþykkt athyglisverð ályktun þar sem skorað var á umhverfisráðherra að skoða kosti þess að banna upprekstur búfjár á afrétt Skagfirðinga næstu 5 árin og nýta tímann til þess að kanna jákvæð áhrif þess á viðkvæman fjallagróður.

 

Í greinargerð sem fylgdi ályktuninni segir: „Á afrétt Skagfirðinga er rekið fé en einnig mikill fjöldi hrossa á vorin, í meira mæli en þekkist á öðrum afréttum, sem bæði sparka upp og naga viðkvæman fjallagróðurinn. Sveitarstjórn og íbúar í Skagafirði, þar á meðal nokkrir bændur hafa gefið sig út fyrir að vera miklir umhverfissinnar þegar kemur að gróðurlausum botni Skagafjarðar og skrifað undir samþykktir og ályktanir í þá veru svo ekki sé talað um afstöðu sjálfs landbúnaðarráðherrans. Þarna gæti verið um mjög spennandi og um leið jákvætt verkefni að ræða sem ætti að vera auðvelt að framkvæma í samvinnu við heimamenn, þar sem flestir hlutaðeigandi hafa ríka umhverfisvitund.“

Að sögn Friðriks G. Halldórssonar hjá Samtökum dragnótamanna er verið að svara fyrir það að undirskriftalistar gegn dragnótaveiðum á Skagafirði voru látnir ganga um Skagafjörð fyrir nokkrum árum sem hafði þau áhrif að Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra beitti sér fyrir því að þær eru bannaðar í dag fyrir botni fjarðarins. Segir Friðrik að rannsóknir bendi til þess að þessi veiðiaðferð sé ekki eins slæm fyrir umhverfið eins og haldið sé á lofti af þeim sem vilja banna slíkar veiðar. Telur Friðrik að Skagfirðingum sé illa við það að aðkomubátar komi inn á fjörðinn til að veiða en enginn dragnótabátur er gerður út í Skagafirði.

Fleiri fréttir