Vilja draga úr tjóni af völdum álfta og gæsa

Búnaðarsamband Skagfirðinga vill að ráðist verði í aðgerðir til þess að draga skipulega úr tjóni af völdum álfta og gæsa. Með aukinni kornrækt hefur álftastofninn a.m.k. tvöfaldast síðan árið 1980 og ekki er séð fyrir endann á þessari aukningu. Málið liggur fyrir Búnaðarþingi, sem nú stendur yfir í Hörpu.

Í málaskrá Búnaðarþings 2014 kemur fram að Bsb. Skagfirðinga mælist til þess að metið verði árlega með faglegum hætti tjón af völdum álfta og gæsa á ræktarlöndum og koma á framfæri við stjórnvöld. Þetta mat verði framvegis fastur liður á hverju hausti samhliða jarðabótaúttektum.

Einnig að gengið verði án tafar til viðræðna við stjórnvöld um hvernig megi, á skilvirkan hátt, gefa tímabundin leyfi til skotveiða á ræktunarlandi þar sem ágangur fugla er mestur. Samhliða því verði hafnar viðræður við stjórnvöld um greiðslu bóta til bænda sem verða fyrir tjóni á ræktunarlandi af völdum fugla, fáist ekki undanþágur til skotveiða.

Jafnframt að haldin verði skotvopnanámskeið, í samráði við ríkislögreglustjóra, sem víðast um land þar sem bændur geta öðlast réttindi til að eiga og nota skotvopn og fái leiðbeiningar um notkun þeirra við veiðar. Bændur fái sömuleiðis faglegar leiðbeiningar um val skotvopna til að verja ræktunarlönd sín.

Þá skorar Búnaðarsamband Suðurlands á Umhverfisstofnun að heimila tímabundið leyfi til skotveiða á álft í tilraunaskyni. Í samstarfi við BÍ yrðu sett ákveðin skilyrði til veiða. Einnig vill sambandið að  skoðaðir verði möguleikar á vorveiði á gæs í túnum til að sporna við mikilli fjölgun gæsa og ágangi sem árlega veldur tugmilljóna tjóni í ræktarlöndum bænda á landsvísu.

Fleiri fréttir