Vill fund í sveitarstjórn sem fyrst
feykir.is
Skagafjörður
02.10.2013
kl. 16.10
Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra hefur sent kollegum sínum í sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar áskorun að boðað verði til fundar í sveitarstjórninni hið fyrsta til að mótmæla tillögum sem fram koma í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá er Sigurjón helst að horfa til þeirra sem snúa að Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki og Háskólanum að Hólum.
Lagt er til í fjárlagafrumvarpinu að heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi verði sameinaðar undir eina stjórn en við það sparast 9,2 millj. kr. á ári hjá HS. Þá er lagt til að framlag til Háskólans á Hólum lækki um 35,8 m.kr.