Vill fund til að ræða brýn mál hjá Svf. Skagafirði
Það kemur Sigurjóni Þórðarsyni fulltrúa Frjálslyndra og óháðra í sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar verulega á óvart það mat formanns byggðaráðs að fá mál séu þess verðug að fá umfjöllun byggðaráðs um þessar mundir en byggðaráðsfundi sem vera átti fimmtudaginn 2. janúar var frestað vegna fárra mála sem væru til umfjöllunar. Ákveðið var að geyma þau til næsta fundar þar á eftir.
Sigurjón Þórðarson vill að fjöldauppsagnir hjá FISK í kjölfar sölu á frystitogaranum Örvari verði ræddar á byggðaráðsfundi.
Sigurjón hefur óskað eftir því að á næsta fundi byggðaráðs verði farið yfir það hvernig stofnanir í Skagafirði koma út úr nýsamþykktu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar undir forystu Framsóknarflokksins og segir að svo virðist sem ekki sé einni krónu úthlutað til Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki í fjárlagafrumvarpinu. Einnig telur Sigurjón rétt að þrýsta á um skipan sýslumanns á Sauðárkróki.
Þá óskar hann eftir því að byggðaráð taki til umfjöllunar fjöldauppsagnir FISK sem hafa verið mjög í umræðunni en upplýst var á dögunum að frystitogarinn Örvar SK-2 verði seldur úr landi.