Villibráðarveisla að Hofsstöðum
Næsta laugardag 22. október verður haldin villibráðarveisla á Sveitasetrinu Hofsstöðum í Skagafirði þar sem Úlfar Finnbjörnsson sem stundum hefur verið nefndur villti kokkurinn verður í eldhúsinu ásamt Þórólfi staðarhaldara.
Viðurnefnið villti kokkurinn fékk Úlfar vegna áhuga hans á veiðimennsku og matreiðslu á villibráð. Hann mun kynna nýútkomna bók sína um villibráð sem slegið hefur í gegn enda er sagt að ef einhver getur svarað því hvernig best sé að nýta bráðina og matreiða hana þá sé það Úlfar Finnbjörnsson.
Þórólfur segir að þeir Úlfar þekkist vel enda hafi þeir lært saman kokkinn í gamla daga og þeir ætli að reyna að hafa gaman á laugardaginn með gestum sínum og galdra fram góðan mat og jafnvel einhverja sjáist einhverjir frumlegir réttir. Enn eru nokkur sæti laus fyrir þá sem verða snöggir til og hægt að panta í síma 8969414.