Viltu læra að nýta þér Facebook sem markaðstæki?

Áhugavert námskeið verður haldið hjá Farskólanum nk. mánudag og þriðjudag í fjarfundi hjá frá endurmenntunarstofnun HÍ. Námskeiðið kallast Facebook sem markaðstæki en Facebook býður upp á sérstakar aðferðir og uppsetningu til að kynna fyrirtæki, vörur og þjónustu t.d. með uppsetningu sérstakra síðna og er þær strax aðgengilegar í Google leitarvélinni, ásamt markvissri markaðssetningu auglýsinga. 

Samkvæmt heimasíðu Farskólans er um grunnnámskeið að ræða og verður fyrst og fremst farið í rétta tæknilega uppbyggingu Facebook síðunnar, þannig að hún nýtist sem allra best í samskiptum við markaðinn. Inn í tæknilegar leiðbeiningar er fléttað hugtökum og aðferðum markaðssetningar á samfélagsvefjum.

„Farið er yfir allar grunnstillingar og uppsetningar. Farið yfir hvaða meginreglur gilda til að síðan nái sem mestum og víðtækustum áhrifum. Farið er yfir "tips og tricks". Skoðað verður hver er munurinn á "venjulegri" facebook síðu og síðum sem gegna markaðshlutverki. Auglýsingar fyrir samskiptanetið eru skoðaðar sérstaklega og þá rætt um markvissa uppsetningu, orðaval og markhópa. Námskeiðið endar á örstuttri kynningu á auglýsingahlið FB,“ segir í lýsingu á námskeiðinu.

Opið er fyrir skráningu á námskeiðið þar til á sunnudag á heimasíðu Farskólans.

Fleiri fréttir