Vinadagur í Skagafirði - Myndir

Vinadagur grunnskólanna í Skagafirði var haldinn í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki og Árskóla í gær. Mikil stemning var í húsinu og tóku krakkarnir vel undir í söng og dansi, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Vinaverkefnið í Skagafirði er samstarfsverkefni leik – grunn og framhaldsskólans, frístundadeildar, íþróttahreyfingarinnar og foreldra í Skagafirði. Verkefnið hefur það að markmiði að ekkert barn í Skagafirði upplifi vinalausa æsku. Einn liður í forvarnarvinnu verkefnisins er að halda svokallaðan vinadag þar sem öll skólabörn ásamt starfsfólki skólanna koma saman og eiga gleðilegan dag.

Fleiri fréttir