Vinamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra

Vinamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra verður haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki, sunnudaginn 15. mars kl 13:00. Keppt verður í fegurðarreið 7 – ­9 ára, tvígangi 10­ – 13 ára, þrígangi 10­ – 13 ára, fjórgangi 14­ – 16 ára og skeiði 14 – ­16 ára.

Skráningar þurfa að berast fyrir kl 24:00 föstudaginn 13. mars. Við skráningu þarf að koma fram nafn keppanda – fæðingarár – hestamannafélag ­- nafn hests, uppruni og litur og upp á hvora hönd er riðið. Skráningar sendist á lettfetar@gmail.com. Skráningargjald er 1000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað áður en mótið hefst (kort ekki tekin).

Síðasta mótið verður haldið á Hvammstanga 12. apríl og verður þá keppt í fegurðarreið, tölti og skeiði.

Keppnisreglur Vinamótsins 2015 eru eftirfarandi:

– Fegurðarreið 7-9 ára. Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega. 2 – 3 keppendur inná í einu. Allir þátttakendur komi inn á völlinn í lokin og fá viðurkenningu fyrir þátttöku.

– Tvígangur 10-13 ára. Riðinn einn hringur á annað hvort brokki eða tölti og fet 1⁄2 hringur. Áseta og stjórnun dæmd. 2 – 3 keppendur inná í einu.

– Þrígangur 10-13.ára. Riðið einn hringur tölt, einn hringur brokk og 1⁄2 hringur fet. Áseta og stjórnun dæmd. 2 – 3 keppendur inná í einu.

– Fjórgangur 14-16 ára. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur brokk, 1⁄2 hringur fet, einn hringur stökk og einn hringur fegurðar tölt.

– Skeið 14-16 ára mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir.

>  Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.

>  Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu.

Fleiri fréttir